Ljónakisan
07.08.2006 20:03:55 / ljonakisan

home sweet home

Hæ hó - bara að láta ykkur vita að við erum komin heim úr sumarfríinu okkar sem var frábært í alla staði :-) Svo á ég afmæli næsta laugardag  - ætla að skella mér í bæinn á hátíðina sem verður haldin í tilefni afmælisins míns :-) heyri betur í ykkur seinna og segi ykkur allt :-)

» 1 hafa sagt sína skoðun

19.07.2006 15:34:26 / ljonakisan

Sól sól skín á mig

Við Sóleyin erum einmitt búnar að fara út og sóla okkur í dag, lovely, erum að bíða eftir Andra til að fara í sund og synda svolítið. Ætlaði að segja ykkur frá sniðugri síðu á netinu með textum, er sko farin að skoða texta þar sem ég er farin að syngja smá fyrir dóttur mína (það á víst að vera mjög örvandi) og man enga texta við barnalög nema bara jólalög og því er gott að fara inn á Snerpa.is eða Midja.is/david/textar - fann þar einmitt Vorvindar glaðir og Geng ég fram á gnípur sem er ljóð sem mér eru minnistæð frá því í skóla :-) En svo er líka hægt að fara inn hornafjordur.is og skoða þar sem þeir eru að steggja bróðir minn :-) Svo langar mig til að segja ykkur frá geggjaða sumarsalatinu sem ég bjó mér til í gær - grænt, avókadó, tómatar, gúrka, beikon skorið í lítið, steikt kjúklingabringa skorin í litla, 1 msk balsamedik og 1 msk hlynsýróp yfir sem dressing - borið fram með ísköldu vatni - sjúklega gott :-) Er að lesa bók sem heitir Fram yfir miðnætti og er eftir Sidney Sheldon og er sko frá árinu 1977 en er ótrúlega skemmtileg - ég er sko öll í morðsögunum en þessi er snilld - veit ekki af hverju maður situr yfir imbakassanum öll kvöld og horfir á eitthvað innantómt rusl þegar maður getur eytt sínum frítíma í góðar bækur sem skilja alla vegana eitthvað eftir sig :-) Er að fara út á land á morgun í sumarfrí frá til 8.ágúst - hlakka til - ég á afmæli 12.ágúst ef þið skylduð vera búin að gleyma því og bið að heilsa í bili.  

» 1 hafa sagt sína skoðun

04.07.2006 23:50:50 / ljonakisan

Jebbs

Jæja þá við komin heim af humarhátíð og takk fyrir skemmtunina þar - klikkar sko ekki Humarhátíðin. Við gæsuðum líka Nínu og þá er bara að bíða eftir 20.júlí til að fara aftur austur í giftingu og enn meira partý :-) Hér verður nú sennilega lítið bloggað fyrr en í september þegar skólinn byrjar - þá byrjar bloggvertíðin aftur hjá mér, fínt að taka sér smá pásu en var að vona að Auður og Hemmi myndu taka við af mér þar sem þau eru að fara í Interrail og eru byrjuð í Þýskalandi, í landinu þar sem bjórinn kláraðist :-) Er að vona að sólin fari að sýna sig aðeins meira og vindurinn að láta sig hverfa aðeins meira en  þangað til næst - yfir og út 

» 0 hafa sagt sína skoðun

11.06.2006 01:38:42 / ljonakisan

Sjómannaball :-)

Við Björg Sóley og Óli Björn Karlsson höfðum það voðalega notalegt í kvöld meðan allt liðið fór á sjómannaball. Við pöntuðum okkur pizzu og horfðum á Hemma Gunn í Það var lagið og gátum við tekið undir með nokkrum lögum. Svo var mamma búin að baka köku og stálumst við í hana eftir matinn. Börnin fóru svo að sofa og komu þá Eva Lind, Björg Sigurjóns og Ólöf Ósk og kíktu á mig og drukku smá öl fyrir ballið (náttla ekki Ólöf wannabe mamma) og eru þær nú léttgeggjaðar - en gaman að fá þær - stalst nefnilega út kl. 22 í gærkvöld þegar prinsessan var sofnuð og fór á rúntinn með Ólöfu en var ég ekki búin að vera nema 45 mín þegar hringt var og sagt að mjólkurbíllinn yrði að koma -  stelpan svooooo svöng, held að hún finni það á sér þegar ég ætla að stelast út, en það er nú í góðu lagi - mamma er einfaldlega bara best :-) Fer í bæinn á mánudaginn og verður nú gott að komast heim en við erum búnar að hafa það mjög næs í sveitinni - hlakka til að koma aftur á Hátíð á Höfn :-) kiss kiss

» 2 hafa sagt sína skoðun

05.06.2006 20:35:44 / ljonakisan

Skírnin búin :-)

Jæja við höfum það rosa gott á Hornafirði og rosa flott skírnarveisla hjá okkur á laugardaginn sem mamma hristi fram úr erminni án minnstu fyrirhafnar og partýið stóð til kl. 2 um nóttina þegar síðustu gestirnir skriðu í koju og það munu vera Bára og Þórunn sem höfðu mesta úthaldið, Andri rétt gafst upp á undan þeim. Svo er planið að fara í Lónið og gista þar eina nótt einhvern tíman núna í vikunni og vona að það fari að stytta upp, reyndar var rosalega gott um helgina og ekki hægt að kvarta mikið. svo förum við suður með flugi á mánudaginn þegar við verðum búnar að taka sjómannadagshelgina hér með trompi. Bið að heilsa þangað til :-)

» 2 hafa sagt sína skoðun

27.05.2006 17:57:57 / ljonakisan

15-12 - tek hann næst!!

Jæja við hjónakornin fórum í hádeginu í skvass niðrí Sporthúsi. Það var mjög skemmtilegt og tók vel á, kallinn eitthvað að kvarta undan eymslum hér og þar eftir þennan hálftíma okkar, erum ekkert alltof góð en æfingin skapar meistarann ekki satt :-) Ég get nú alveg viðurkennt það að ég tapaði báðum leikjunum, 15-12 og 15-10 en þið sjáið að ég var ekkert langt á eftir... Litla snúllan var í pössun hjá Ellu frænku á meðan. Fórum svo að kjósa og tókum langan göngutúr með viðkomu í Smáralindinni, en nú á bara að smella kótilettunum (hvernig skrifar maður þetta orð?..) á grillið og hafa það gott :-)

» 4 hafa sagt sína skoðun

25.05.2006 15:07:19 / ljonakisan

Hressingarskálinn í gær :-)

Þá er það ungbarnaSUND í dag kl. 18:30 - hlökkum mikið til. Förum í innilaugina á Hrafnistu í Reykjavík og heitir sundkennarinn einmitt Sóley :-) Þess vegna sem við völdum hana :-) Fengum rosa flottan sundbol frá Jane og Gísla sem á að vígja - myndavélin verður að sjálfsögðu með í för og á að mynda sunddrottninguna í bak og fyrir :-) Ágætis veður í dag og fórum við út að labba með vagninn. Kíkti á Hressó í gær með Gullu, Önnu Kristínu og Ólöfu og var mikið líf þar (skil reyndar ekki í því að ég þekkti ENGAN þar) en var smá sybbin í morgun þegar litla snúllan (sem ég hugsaði um næstum allan tímann á Hressó) vakti mig og setti svo upp fallegasta bros í heimi :-) Björg Sóley - Laaaangbest í heimi!!!!!  C u soon  

» 0 hafa sagt sína skoðun

24.05.2006 15:23:49 / ljonakisan

Hæ hó jibbí jei og jibbí jei

Hæ hó - litla frænka fæddist kl. 01 og var 16 merkur og 52 cm og er búin að fá nafnið Þórdís Helga. Dóra toppaði mig og tók bara 9 tíma í fæðinguna í heild, ég tók 10. Allt gengur rosa vel hjá þeim og sefur sú stutta bara og drekkur vel :-) Björg Sóley er núna ekkert lítil lengur eftir að við hittum nýjustu snúlluna.

 Fengum boðskortið í dag í giftingu Kalla og Nínu og lét ég að sjálfsögðu vita að við myndum mæta og var mér sagt að ég myndi sko ekki sjá eftir því, efast ekki um það :-) Nú eru eldri systkini mín þrjú öll búin að gifta sig,

Siggi og Lilja byrjuðu 21.ágúst 2004,

Þórunn og Meyvant 5.ágúst 2005 og nú eru það

Kalli og Nína 22.júlí 2006 ég held að Bára og Kiddi verði bara að taka þetta næsta sumar 2007 hehehe :-)  ég ætla nefnilega ekki að gifta mig fyrr en ég verð grönn tíhíhíhí :-) Bið að heilsa :-)


» 0 hafa sagt sína skoðun

22.05.2006 22:01:09 / ljonakisan

Lítill frændi/frænka á leiðinni í heiminn :-)

Okkur fjölskyldunni var boðið í 35 ára afmæli hjá Dóru systir Andra í dag, okkur sagt að koma bara síðdegis í kaffi. Hún á von á sínu fyrsta barni og er skráð á morgun.  Ég beið eftir að Andri kæmi heim úr vinnunni og þegar til Dóru var komið var afmælisbarnið og hennar ektamaður farin upp á fæðingardeild með hríðar :-) Við sitjum því spennt og bíðum eftir fréttum, sennilega gerist ekkert fyrr en í nótt en vonandi fáum við góðar fréttir í fyrramálið :-) Þau komu og náðu í vögguna á laugardaginn svo þetta mátti nú ekki seinna vera :-) Við Andri erum svo spennt því það er nú ekki langt síðan við vorum i sömu sporum og vonum bara að allt gangi eins vel hjá þeim eins og hjá okkur :-) Þess má einnig geta að Björg Sóley fæddist kl. 01:54 og einmitt þá vaknaði Dóra og sendi Andra skilaboð hvort eitthvað væri nú að gerast - fékk eitthvað á tilfinninguna, kannski bróðir hennar hrökkvi upp í nótt um leið og systir hans öskrar síðasta öskrið :-)

» 0 hafa sagt sína skoðun

20.05.2006 01:21:18 / ljonakisan

til hamingju Ísland - því að ég fæddist hér!!!!

Jæja þá er Eurovision á morgun og erum við íslendingar orðin vön því að fá ekki að vera með alveg sama hvernig lag við erum með en skítt með það - partý skal halda :-) Litla snúllan er nú komin í barnarúm - vaggan er bara fyrir smábörn :-) Fengum rúmið hans Óla litla með flutningabíl í dag þar sem Dóra mágkona mín gæti farið að unga út á hverri stundu og ætlar hún að fá vögguna (hennar Gullu) lánaða. Við Björg Sóley fórum í gær í saumó - fórum að hitta stelpurnar sem fóru með mér til Frakklands fyrir tæpum 8 árum ....vá hvað ég er að verða gömul, sátum og kjöftuðum og horfðum á Silvíu og hina söngfuglana og komum heim kl. 22.30, gaman að hitta þær :-) Bið að heilsa ykkur í bili :-) 

» 0 hafa sagt sína skoðun

16.05.2006 23:46:36 / ljonakisan

Skoðið þessa síðu...

Er búin að vera að lesa þessa bloggsíðu - maður les hana með tár í augum og sorg í hjarta og áttar sig fyrst þá á hvað maður á gott að þurfa ekki að vera með barnið sitt á spítala og allt gengur vel - en þetta er sannar hetjur þau Bebba og Hjölli - kíkið á þau.


» 0 hafa sagt sína skoðun

16.05.2006 10:00:51 / ljonakisan

er með harðsperrur dauðans.....

Sól, sól og meiri sól endalaust hjá okkur - lovely :-) Fórum í partý um helgina og Bára kom svo og náði í snúlluna og fór með hana heim og svæfði hana og við Andri "djömmuðum" alveg til hálf tvö - maður hafði nú bara gott af því að fara aðeins út. Svo er saumó á fimmtudaginn og mér var skipað að koma með Björgu Sóleyju með mér og svo ætlum við familían að halda smá Eurovision partý á laugardaginn, grilla og það á víst að setja upp myndvarpa og varpa Silvíu upp á vegg og við Björg Sóley fórum í Next í gær og gátum ekki annað en keypt Eurovision pils handa henni :-)   

» 1 hafa sagt sína skoðun

10.05.2006 06:39:21 / ljonakisan

Allir dansa samba :-)

Frábær dagur í gær - við byrjuðum á mömmu morgni kl. 10 og svo um hádegið var brunað með strætó niður á Hlemm þar sem Ella og Dalli tóku á móti okkur og töltu með okkur niður Laugaveginn þar sem var ekki þverfótað fyrir fólki. Þegar þau þurftu að fara þá vorum við svo ljónheppnar að finna Bjöggu og Dórótheu sólgleraugnagellu þar sem þær sátu fyrir utan Thorvaldsen með Margréti og Friðriki  og við settumst hjá þeim og sóluðum okkur, geggjað heitt og gott- algjört spánarveður sko.Við sátum þar i góða 2 tíma og þegar tími var komin að halda heim þá ákváðum við að rölta áleiðis með Bjöggu og Dórótheu, löbbuðum frá Hlemmi, upp laugaveginn, borgartúnið og skildust leiðir hjá Laugardalslauginni þar sem við héldum upp á Grensás til að ná síðasta vagninum heim rétt um kl. 18. Við hittum Erlu Rut og Palla sem buðu okkur í grill um næstu helgi og þegar við loksins komum heim var Andri mættur og við dauðþreyttar eftir sólina og labbið skriðum öll upp í rúm kl. 10 þar sem Björg Sóley heldur nú orðið að dagurinn byrji kl. 5:40 því það er svo bjart úti svo við verðum að fá okkur einhver myrkragluggatjöld ef við ætlum að vera svo bjartsýn að fá að sofa til 07:00 í sumar :-)  


» 0 hafa sagt sína skoðun

09.05.2006 07:48:30 / ljonakisan

joleríjoleríhíhíhí

He he já ég nota - þetta bandstrik allt of mikið - á að setja kommu í staðinn, svo hitastigið komi rétt út, +18°C í gær líka og vorum við Björg Sóley úti að labba út um allt frá kl. 13 -17. Fyrst tóku Bára og Kiddi smá hring með okkur en svo þurfti Bára að fara að nudda og svo tókum við hring með Kristínu og Viktori Má sem við kynntumst á MömmuMorgnunum og búa hérna rétt hjá okkur. En í dag ætlum við einmitt að kíkja á MömmuMorgna og svo bara út að labba - er mjög fegin að vera ekki í prófum núna, vorkenni þeim sem þurfa að hanga upp á þurrkuntulegri þjóðarbókhlöðunni í góða veðrinu :-) Við snúllurnar biðjum að heilsa í bili - B.S.B & B.Ó 

» 0 hafa sagt sína skoðun

07.05.2006 20:59:53 / ljonakisan

Sól, sól skín á mig :-)

Geggjað veður í dag - 18 °C hiti og sól og logn og við vorum úti í allan dag - vonast til að fá annan svona dag á morgun, það væri ekki leiðinlegt sko!! Fórum í rosa stóran labbitúr í Grafarvoginum, vorum í 3 tíma og svo fórum við í þrefalda afmælisveislu hjá systkinunum Georg Fannari, Margréti Evu og Hjörleifi sem eiga öll afmæli í apríl og fengu þau dollara í afmælisgjöf þar sem þau eru að fara til Ameríku með foreldrum sínum í sumar. Vona vona vona að svona verði veðrið aftur á morgun :-) krosslagðir fingur....   


» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 15