Ljónakisan
07.05.2006 20:59:53 / ljonakisan

Sól, sól skín á mig :-)

Geggjað veður í dag - 18 °C hiti og sól og logn og við vorum úti í allan dag - vonast til að fá annan svona dag á morgun, það væri ekki leiðinlegt sko!! Fórum í rosa stóran labbitúr í Grafarvoginum, vorum í 3 tíma og svo fórum við í þrefalda afmælisveislu hjá systkinunum Georg Fannari, Margréti Evu og Hjörleifi sem eiga öll afmæli í apríl og fengu þau dollara í afmælisgjöf þar sem þau eru að fara til Ameríku með foreldrum sínum í sumar. Vona vona vona að svona verði veðrið aftur á morgun :-) krosslagðir fingur....   

Liljan skrifaði
-18°c ... hehe mér finnst það nú frekar kalt bara, enda mikil kuldaskræfa =) knús til Bjargar Sóleyjar frá mér ***

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.