05.06.2006 20:35:44 / ljonakisan
Skírnin búin :-)
Jæja við höfum það rosa gott á Hornafirði og rosa flott
skírnarveisla hjá okkur á laugardaginn sem mamma hristi fram úr
erminni án minnstu fyrirhafnar og partýið stóð til kl. 2 um nóttina
þegar síðustu gestirnir skriðu í koju og það munu vera Bára og
Þórunn sem höfðu mesta úthaldið, Andri rétt gafst upp á undan þeim.
Svo er planið að fara í Lónið og gista þar eina nótt einhvern tíman
núna í vikunni og vona að það fari að stytta upp, reyndar var
rosalega gott um helgina og ekki hægt að kvarta mikið. svo förum
við suður með flugi á mánudaginn þegar við verðum búnar að
taka sjómannadagshelgina hér með trompi. Bið að heilsa þangað til
:-)